144. löggjafarþing — 45. fundur,  10. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[19:52]
Horfa

Þórunn Egilsdóttir (F):

Hæstv. forseti. Hér er lagt til að auka enn fjárveitingar til að styrkja rekstrargrundvöll Sjúkrahússins á Akureyri. Sjúkrahúsið er mikilvæg stofnun og þar er unnið gott verk sem að mestu leyti þjónar landsbyggðinni. Hér er ríkisstjórnin að sýna forgangsröðun sína í verki og það er vel.