144. löggjafarþing — 45. fundur,  10. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[19:52]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F):

Virðulegi forseti. Ég ætlaði að fagna því sérstaklega að okkur er að takast að koma auknu framlagi til þessarar mikilvægu stofnunar. Okkur tókst það líka fyrir um ári þegar við bættum verulega í varðandi tækjakaup og vonandi mun okkur takast áfram á næstu missirum að bæta enn frekar í og styrkja þessa mjög svo mikilvægu stofnun, ekki bara fyrir Akureyringa heldur landsbyggðina alla.