144. löggjafarþing — 45. fundur,  10. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[19:59]
Horfa

Guðbjartur Hannesson (Sf):

Hæstv. forseti. Hér er flutt tillaga til þess að koma örlítið betur til móts við Landspítalann. Ástæðan fyrir því að ég kem hingað upp til þess að fylgja þessari tillögu líka eftir er að það er gríðarlega mikilvægt að stjórnarmeirihlutinn og raunar alþingismenn í heild gefi yfirlýsingu um að Landspítalinn eigi ekki að greiða halla síðastliðinna tveggja ára. Það var halli á þessu ári upp á 1 milljarð og hér er verið að tala um að mæta því ef hallinn verður ekki frystur og nýtt fjármagn látið fara inn í grunninn. Árið þar á undan, 2013, var hallinn upp á 1.584 milljónir og ef það á að hanga yfir spítalanum að það eigi eftir að borga upp þennan halla þá eru þessar fjárveitingar engan veginn nógar. Í trausti þess að það verði ekki gert heldur verði þetta fryst og síðan látið hverfa af spítalanum, tekið í gegnum ríkisreikning, leggur minni hlutinn fram sína tillögu. Það munar verulega á þeirri tillögu sem hér kemur fram hjá minni hlutanum og þeirri sem kemur frá meiri hlutanum þar sem bæði er viðhald og síðan viðbótarfjárhæð (Forseti hringir.) upp á 250 milljónir. Ég segi að sjálfsögðu já við þessari tillögu en sit hjá við næstu tillögu ef þessi fer ekki í gegn.