fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Það hefur orðið nokkrum hér að umræðuefni hvernig við í Samfylkingunni greiðum atkvæði í kvöld um meðferð þessara fjárlaga. Við höfum í tvígang greitt atkvæði með tillögum ríkisstjórnarinnar vegna sérstakra aðstæðna. Að öðru leyti sitjum við hjá við afgreiðslu, enda fjárlög á ábyrgð ríkisstjórnarmeirihlutans. Hér er um það að ræða að við erum óskaplega hamingjusöm yfir því að hafa náð að sannfæra ríkisstjórnarmeirihlutann um að gera eitthvað í byggingu nýs Landspítala. Þetta er búið að vera baráttumál okkar, þetta var málið sem allt stóð á hér við samninga um þinglausnir vorið 2013 (Gripið fram í.) þegar hæstv. forsætisráðherra vildi ekki sjá byggingu nýs Landspítala þegar hann var leiðtogi í stjórnarandstöðu og við stóðum í þinglokasamningum. Þetta var aftur þinglokasamningaefni í vor þegar við fengum samþykkta þingsályktunartillögu sem (Forseti hringir.) lögð var fram að frumkvæði stjórnarandstöðunnar um byggingu nýs Landspítala. Það er mikið ánægjuefni að ríkisstjórnarmeirihlutinn sé loksins búinn að sjá ljósið í þessu efni. Við fögnum því og styðjum ríkisstjórnarmeirihlutann til góðra verka. (Gripið fram í: Það er gott.)