144. löggjafarþing — 45. fundur, 10. des. 2014.
fjárlög 2015.
1. mál
Hæstv. forseti. Sjúkraflutningar eru mikilvægur þáttur heilbrigðiskerfisins, ekki síst á landsbyggðinni. Meiri hluti fjárlaganefndar leggur til að 100 milljónum verði bætt við þann lið. Ég er mjög ánægð með þá ráðstöfun og segi já.