fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Ég ætla aðeins að fá að koma upp og leiðrétta ákveðna hluti sem komu fram varðandi framlög í VIRK Starfsendurhæfingarsjóð. Með þeirri breytingartillögu sem við vorum að samþykkja núna er ríkissjóður í fyrsta skipti að fara að borga 200 milljónir, eða krónu, inn í VIRK Starfsendurhæfingarsjóð. Það hefur ekki gerst fyrr. Og ástæðan fyrir að það hefur ekki gerst fyrr er meðal annars að Alþingi setti þá kröfu að VIRK Starfsendurhæfingarsjóður ætti ekki að safna í sjóði. Þar eru 2,2 milljarðar í sjóði.
Hvað varðar síðan umræðuna varðandi jöfnun á örorkubyrði almennra lífeyrissjóða vil ég bara benda á að Öryrkjabandalagið hefur verið að óska eftir hækkun á grunnlífeyrinum og jöfnun á örorkubyrði mundi fara hátt með það að mæta kröfum þeirra á hækkun á grunnlífeyrinum.
Ef við mundum sameina lífeyrissjóðina væri þessi vandi ekki lengur til staðar, hér væri kannski hvati til þess, eða þá líka að huga að því, en algengasta ástæðan nú í dag fyrir örorku á Íslandi er geðraskanir. Ég held að það komi nokkuð jafnt niður á stéttirnar.