144. löggjafarþing — 45. fundur,  10. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[21:40]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Hér hefur myndast býsna löng mælendaskrá undir liðnum fundarstjórn forseta. Forseti vill þá árétta það sem hann hefur neyðst til að gera æ ofan í æ að þetta er umræða um fundarstjórn forseta. Hér er ekki verið að víkja endilega að þeim sem hér hafa talað heldur er þetta ekki síður viðvörunarskot til þeirra sem munu tala á eftir.