virðisaukaskattur o.fl.
Virðulegur forseti. Meiri hlutinn mun væntanlega samþykkja að hækka skatt á menningu, afnema sykurskattinn og hækka virðisaukaskatt á matvæli. Ég gagnrýni að í rauninni skuli ekki liggja fyrir gögn eða rannsóknir sem segi okkur til um hvernig þessar breytingar komi við einstaka tekjuhópa, neytendur. Á sama tíma og verið er að setja einhverja peninga í lýðheilsusjóð undir forsætisráðuneytinu ætlum við að afnema sykurskattinn. Við höfum enga hugmynd um hvaða áhrif það hefur á lýðheilsu. Það er talað um að auka skilvirkni í kerfinu með því að færa virðisaukaskattsþrepin nær hvort öðru. Ef við höfum það á tilfinningunni að það sé mikið um skattundanskot í landinu, af hverju aukum við þá ekki eftirlitið og setjum meira fé til skattrannsóknarstjóra?