144. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2014.

virðisaukaskattur o.fl.

2. mál
[12:01]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Með þeim breytingum sem fylgja þessu frumvarpi erum við að slaka út um það bil 5 milljörðum frá ríkissjóði til heimilanna í landinu. Það er svo einfalt. Virðisaukaskattsbreytingarnar eru tímabærar og mikilvægar. Það er vegna þess að virðisaukaskattskerfið okkar er ekki nægilega skilvirkt. Það lekur, t.d. þrátt fyrir stórauknar komur erlendra ferðamanna sjáum við ekki vöxt í tekjum samhliða því í virðisaukaskatti. Það er ekki að gerast. Það er of mikið um undanþágur og við erum að afnema nokkrar mikilvægar undanþágur, m.a. hjá ferðaþjónustunni.

Síðan er það alveg sérstakt fagnaðarefni að við skulum nú afnema vörugjöldin á um 800 vöruflokkum. Það er ótrúlegt að sjá menn koma hingað upp og nefna einn og tvo vöruflokka en sjá ekki allt hitt sem til dæmis er í efra þrepinu. Allt hér er í efra þrepinu, fötin sem við erum í, ljósin, málningin, gólfið, teppið, þakið, (Gripið fram í.) grindverkið þarna uppi, allt er þetta í efra þrepinu, [Kliður í þingsal.] í efra þrepi virðisaukaskatts. (Gripið fram í.) Það er óþægilegt fyrir stjórnarandstöðuna að hlusta á þetta vegna þess að hún veit sem er (Forseti hringir.) en reynir að halda því að fólkinu í landinu, sem er rangt, að (Forseti hringir.) breytingarnar leiði til hærra verðlags. Verðlag mun lækka, kaupmáttur (Forseti hringir.) mun aukast.