144. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2014.

virðisaukaskattur o.fl.

2. mál
[12:19]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Herra forseti. Hér er enn verið að gera virðisaukaskattskerfið rökréttara. Verið er að minnka bilið milli þrepanna sem gerir að verkum að það verður ekki eins arðsamt að svindla á kerfinu. Menn hafa talað mikið um hækkun á matarskatti og ég nefndi áðan að matarkarfan sem kostar 10 þús. kr. mun hækka um 370 kr., minna en fjóra hundraðkalla. Hins vegar er í matarkörfunni heilmikið af vörugjöldum þannig að sennilega hækkar hún ekki nema um 1–2%, þ.e. um 100–200 kr. Þannig að 10 þús. kr. matarkarfa hækkar um einn eða tvo hundraðkalla, það eru öll ósköpin. Ég hef ekki miklar áhyggjur af því. Hins vegar er þetta til þess að einfalda kerfið, gera það skilvirkara og koma í veg fyrir skattsvik.