virðisaukaskattur o.fl.
Virðulegi forseti. Eins og sjá má erum við fylgjandi því að afnema þessi vörugjöld. Það er þó dökkt ský yfir þessari atkvæðagreiðslu og það er afnám sykurskattsins. Ég skil ekki þá meinloku hjá ríkisstjórninni að vilja ekki innheimta sérstakt gjald vegna sykurneyslu. Þetta er góður skattur að því leytinu til að hann er algjörlega sambærilegur við mengunarskatta, sambærilegur við t.d. bifreiðagjöld og annað slíkt þar sem vitað er að neysla sykurs mun hafa áhrif á þriðja aðila, þ.e. skattgreiðendur, vegna þess að það er einn stærsti orsakavaldur lífsstílstengdra sjúkdómum hér á landi. Og hverjir greiða það? Jú, það eru skattgreiðendur. Þá er eðlilegt að með neyslunni sé greitt inn í ríkissjóð í auknum mæli. Þar að auki finnst mér undarlegt að á sama tíma og menn eru að draga úr skattheimtu á sykur séu þeir að auka skattheimtu á heilsuvörur (Forseti hringir.) eins og til dæmis grænmeti og ávexti. Þetta gera menn á sama deginum, bara sisvona. (Forseti hringir.) Þetta er undarleg forgangsröðun.