virðisaukaskattur o.fl.
Hæstv. forseti. Ég er hoppandi kát eins og hv. þm. Pétur H. Blöndal með þessa atkvæðagreiðslu hér í dag. Það skemmtilega við þetta líka er að hér birtist okkur munurinn á Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum sem sitja í ríkisstjórn og þeim sem eru til vinstri í pólitík og skilja ekki mikilvægi þess að skattkerfið sé einfalt og skilvirkt. Þetta er gríðarlega stór áfangi sem við stöndum frammi fyrir í dag. Við erum að afnema almennu vörugjöldin sem hefur gríðarlega þýðingu fyrir allt fólkið í landinu, fyrir þá sem eru að stofna fjölskyldu og kaupa sér húsnæði í fyrsta skipti, fyrir þá sem þurfa að endurnýja rafgeyminn í bílnum sínum og svo mætti (Gripið fram í.) lengi telja. Það er ekki þannig, herra forseti, að þetta snúist eingöngu um flatskjái, við erum að tala um vörur sem flestallir Íslendingar kaupa, við eigum að fagna þessum áfanga. Þetta er hluti af stefnumálum þessarar ríkisstjórnar, (Forseti hringir.) stórt skref er stigið hér í dag og því ber að fagna.