virðisaukaskattur o.fl.
Herra forseti. Hér er verið að bjóða þjóðinni sætt með súru, að lækka vörugjöldin af sykrinum en það súra er að verið er að hækka virðisaukaskatt á matvæli, á hollustuna. Það er verið að leiða þjóðina inn í óhollustu. Þetta er lýðheilsustefna þessarar hægri stjórnar og ég held að hæstv. heilbrigðisráðherra hljóti að vera ansi hnípinn, enda sýnist mér það, nema hann hafi skipt um stefnu í ráðuneyti sínu því að ég hélt að það væri nýsamþykkt stefna um lýðheilsu. En það virðist ekki vera (Gripið fram í.) þar á borði að verið sé að framkvæma eftir þeirri stefnu sem ætti að gera. Þetta þýðir að verið er að beina, eins og ég hef talað um, lágtekjufólki í landinu inn í óhollustu frekar en að það hafi efni á að kaupa hollan mat. Það er mjög slæmt, hv. þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. Þú ættir að kynna þér þau mál betur.