144. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2014.

ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2015.

3. mál
[12:54]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hér kemur til atkvæða það frumvarp sem hægt er að kalla skuggahliðar ríkisfjármálastefnunnar. Þar er að finna ýmiss konar ákvæði sem í mörgum tilvikum fela í sér að vanræktar eru lögbundnar skyldur. Það sem mest er um vert er að í mörgum tilvikum er verið að ganga gegn samningsbundnum réttindum á vinnumarkaði. Einhliða grípur ríkisstjórnin inn í uppbyggingu réttinda á vinnumarkaði.

Það er ótrúlegt að heyra hæstv. ráðherra tala um það af og til að gera þurfi þjóðarsátt í kjaramálum. Þjóðarsátt í kjaramálum verður ekki byggð á því að ríkisvaldið hlutist einhliða til um að rýra hag launafólks áður en sest er að samningaborði. Við munum greiða atkvæði gegn öllum þeim tillögum sem lúta að því að rýra réttindi almenns launafólks.