almannatryggingar o.fl.
Virðulegur forseti. Framsóknarflokkurinn lofaði öryrkjum fyrir kosningar sem fram fóru bara í fyrra, að afnumdar yrðu síðustu skerðingarnar sem gripið var til í hruninu. Svo kemur hæstv. félagsmálaráðherra upp ári eftir að hann er kjörinn í þessu umboði og skerðir greiðslur til öryrkja um hálfan milljarð frá því sem þær voru í þessu samhengi — um hálfan milljarð. Þetta verður ekki kallað neitt annað en hrein svik á þeim loforðum sem Framsóknarflokkurinn gaf öryrkjum. Ég hlýt að spyrja hæstv. ráðherra hvort það sé enginn vilji til þess í ríkisstjórninni að láta fjármuni af hendi rakna til þess að bæta kjör öryrkja, að minnsta kosti að halda inni þeim greiðslum sem voru til þess að varna víxlverkuninni en ekki að draga úr þeim um 500 milljónir. Það kemur manni kannski ekki á óvart þegar búið er á milli umræðna að leggja í mikinn leiðangur til þess að lækka örorkubætur sérstaklega um hálft prósent, en mér kemur það samt á óvart að fá þetta í frumvarpi frá hæstv. félagsmálaráðherra Eygló Harðardóttur. Ég hefði vænst meira af ráðherranum en að hann komi hér inn með hálfs milljarðs skerðingu á þeim greiðslum sem runnu til öryrkja á síðasta kjörtímabili.