144. löggjafarþing — 48. fundur,  12. des. 2014.

almannatryggingar o.fl.

459. mál
[15:32]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Eygló Harðardóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er alveg rétt, það væri svo sannarlega ekki fyrir örykjana og þess vegna erum við hér og þess vegna erum við sammála um að afgreiða þetta fyrir áramótin. Það er mikilvægt að hafa þetta í huga og nákvæmlega eins og hv. þm. Guðbjartur Hannesson segir snýst þetta um hvernig við viljum líta á hlutina. Hér erum við því að tryggja að þessi breyting muni koma þeim betur sem eru tekjulægstir, eins og ég fór í gegnum í ræðu minni áðan, þeim sem eru með undir tæplega 270 þús. kr. Hugsunin á bak við að leggja þessa leið til var að við mundum halda utan um þennan hóp sem er með lægstu greiðslurnar í gegnum almannatryggingakerfið.