144. löggjafarþing — 49. fundur, 15. des. 2014.
framkvæmd þingsályktunar um tjáningar- og upplýsingafrelsi.
Virðulegi forseti. Ég þakka svarið. Nú hefur verkefnið verið í yfir fjögur ár í vinnslu þannig að það er kominn dágóður tími. Þá vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvort hann muni styðja breytingartillögu við fjárlagafrumvarpið þess efnis að veita fjármuni sérstaklega til verkefnisins.