vísun skýrslna Ríkisendurskoðunar til nefnda.
Með bréfi dagsettu 10. desember síðastliðinn hefur forseti óskað eftir því, samanber ákvæði 8. töluliðar 1. mgr. 13. gr. þingskapa, við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að hún fjalli um eftirfarandi þrjár skýrslur frá Ríkisendurskoðun: Skýrslu um alþjóðlega samninga um varnir gegn mengun sjávar frá skipum, skýrslu um mannauðsmál ríkisins og skýrslu um siðareglur fyrir starfsfólk Stjórnarráðs Íslands.
Með öðru bréfi dagsettu 10. desember síðastliðinn hefur forseti óskað eftir því, samanber ákvæði 8. töluliðar 1. mgr. 13. gr. þingskapa, við fjárlaganefnd að hún fjalli um skýrslu Ríkisendurskoðunar um endurskoðun ríkisreiknings 2013.