144. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2014.

virðisaukaskattur o.fl.

2. mál
[15:26]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég held að það sé fullur vilji til að endurskoða þetta sem lýtur að laxveiðileyfunum. Ég er ekki nákvæmlega inni í því hvar er verið að vinna þetta. Ég hugsa að þetta hafi komið til umræðu bæði á vettvangi efnahags- og viðskiptanefndar þar sem ég á ekki sæti og eins í ríkisstjórn þar sem ég sit ekki heldur en ég tek fullt mark á yfirlýsingum manna um að þetta sé til alvarlegrar skoðunar.

Varðandi hins vegar tolla á innflutt matvæli er það stærra og flóknara mál. Þrátt fyrir að menn viðurkenni óhagræðið sem af þessu hlýst, hærra matvælaverð og ýmiss konar vandkvæði önnur í þessu sambandi, er líka um að ræða ákveðna vernd í þessum tollum fyrir innlenda framleiðslu. Það er alveg hárrétt sem hv. þingmaður nefndi í ræðu sinni að samhliða afnámi tolla á matvæli hlýtur að koma til skoðunar líka hvaða mótvægisaðgerðir, svo maður noti nú tískuorð dagsins, komi til í því sambandi (Gripið fram í.) og það er afar mikilvægt að það verði skoðað heildstætt. Það breytir hins vegar ekki því að það sem hv. þingmaður vakti athygli á í máli sínu um galla núverandi fyrirkomulags er hárrétt og þar er fyrir hendi að mínu mati verkefni sem þarf að ráðast í.

Það hefur mætt andstöðu hagsmunaaðila og við gerum okkur grein fyrir því að slík andstaða verður fyrir hendi. Hins vegar held ég að eins og hv. þingmaður ýjaði að sé hægt að mæta þeim sjónarmiðum með öðrum hætti þannig að það sé hægt að aðstoða íslenskan landbúnað, ef við orðum það svo, af meiri skilvirkni og skynsemi en með þessari tollvernd.