144. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2014.

virðisaukaskattur o.fl.

2. mál
[15:30]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil ræða hér breytingartillögu hv. þingmanns sem hann flytur ásamt með flokksfélögum sínum, hv. þingmönnum Birgittu Jónsdóttur og Helga Hrafni Gunnarssyni, og gengur, ef ég skil rétt, út á að afnema á einu bretti alla verndartolla fyrir innlenda búvöruframleiðslu. Engu að síður hefur hv. þingmaður viðurkennt að væntanlega yrði að grípa til einhverra mótvægisaðgerða, menn mundu ekki gera þetta sisona og þá yrðu einhver útgjöld því samfara. Sá galli er á þessari tillögu sem raunverulegri tekjutillögu í núinu að menn yrðu að sýna í fyrsta lagi að mínu mati útfærslu og í öðru lagi fjárhæðir í sambandi við þær mótvægisaðgerðir sem væntanlega yrði gripið til.

Menn hafa nefnt oft í þessu sambandi garðyrkjuna og þá gjarnan tíundað að henni hafi vegnað nokkuð vel frá því að breytingar í þessa veru voru gerðar þar en sleppa gjarnan að geta um að garðyrkjan fékk á móti samning við ríkið um stuðning sem er nálægt 500 millj. kr. í dag, ef ég veit rétt, eitthvað í nágrenni við hálfan milljarð. Á grunni þess hefur garðyrkjunni tekist ágætlega að spjara sig, en hún er með þann stuðning.

Mér finnst að því fylgi nokkur ábyrgð að henda inn tillögu af þessu tagi og því er önnur hlið þessara mála sem ég vil spyrja hv. þingmann út í. Ef þetta yrði gert einhliða af Íslands hálfu mundu íslenskir framleiðendur búa við umtalsverða tolla á vörum sínum í útflutningi ef við gerðum þetta án samninga um gagnkvæma niðurfellingu. Staðan í dag er sú að útflutningur á skyri, kjöti og öðrum slíkum vörum sætir umtalsverðum tollum, t.d. í Evrópusambandinu, nema þetta litla magn sem við höfum náð að kría út tollkvóta fyrir. Ég held að það gæti aldrei gengið. Engin þjóð kæmi þannig fram við sína framleiðslu að hún felldi einhliða niður tollana á henni án þess að gera tilraun til að reyna að semja um (Forseti hringir.) gagnkvæmni á móti og að útflutningur sömu vara yrði þá að minnsta kosti tollfrjáls.