virðisaukaskattur o.fl.
Hæstv. forseti. Það er eitt atriði í ræðu hv. þm. Helga Hjörvars sem ég staldra við og það varðar kannski þá tvo þætti í því frumvarpi sem hér er til umræðu sem ég tel mikilvægasta. Ég á annars vegar við lækkun efra þrepsins í virðisaukaskatti sem er umtalsverð þó að það hafi ekki farið hátt í þessari umræðu. Það er verið að lækka almenna þrepið, sem nær til langflestra vörutegunda og þjónustutegunda, úr 25,5% í 24%. Hins vegar á ég við það þegar hann víkur að niðurfellingu vörugjalda sem ég álít að sé gríðarlega mikilvægt hreinsunarstarf, bæði tæknilega og eins til þess að létta álögum af kaupendum þeirrar vöru sem þar er um að ræða.
Hv. þingmaður víkur að því sem hefur komið upp í þessari umræðu fram og til baka og varðar það að hve miklu leyti þessar lækkanir muni skila sér til almennings í lægra vöruverði. Um það er að segja að á því höfum við sem sitjum í þessum sal ekki fullt vald vegna þess að verðmyndun er ekki ákveðin hér. Sú hætta sem hv. þingmaður víkur að í máli sínu er því vissulega fyrir hendi.
Ég held að það geti hins vegar ekki verið rök fyrir því að sleppa þeim lækkunum sem um er að ræða. Ef við á annað borð teljum að lækka eigi almenna þrepið í virðisaukaskattskerfinu þá eigum við að gera það og reyna, bæði sem neytendur og sem þátttakendur í opinberri umræðu, að halda þeim sem með verðmyndunarvaldið fara við efnið og hins vegar þurfum við að átta okkur á því hvort við teljum að (Forseti hringir.) skattprósentan eigi (Forseti hringir.) að ráðast af því einu að það sé bara hægt að hækka (Forseti hringir.) skatta en ekki lækka, vegna þess að hætta sé á því (Forseti hringir.) að það skili sér ekki til almennings í lægra verði.