virðisaukaskattur o.fl.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þetta er allt saman rétt hjá hv. þm. Birgi Ármannssyni. Öll þessi atriði eru rétt hjá þingmanninum. Það er framfaramál að losna við vörugjöldin enda greiddum við því atkvæði hér fyrir helgina. 25,5% virðisaukaskattur var auðvitað líka ívið hærri en æskilegt er og í raun gripið til þess á neyðarstundu í fjármálum ríkissjóðs. Það er líka rétt hjá honum að margt bendir til þess að þessar lækkanir muni ekki skila sér í vöruverði vegna þess að vörur þarna eru annars vegar vörur sem eru mikið seldar atvinnulífinu en ekki heimilum, þ.e. efra þrepið í vaskinum, og hins vegar vegna þess einfaldlega að þær eru verðlagðar út frá staðsetningu markaða, munu bara áfram kosta 9.980 kr. alveg sama hvort einhver vörugjöld eru á vörunni eða ekki.
Hvorugt þessara atriða er nein réttlæting fyrir því að hækka matarskattinn úr 7% í 11%. Það að hækka matarskattinn úr 7% í 11% er sjálfstæð ákvörðun. Það er sjálfstæð ákvörðun um skattlagningu, um skattahækkun, sem mun valda hækkun á vöruverði, auknum útgjöldum fyrir heimilin. Hin tvö atriðin geta aldrei orðið nein réttlæting fyrir því því að það hefði auðveldlega mátt fjármagna afnám vörugjaldanna og lækkunina á efra þrepinu með því að framlengja áfram að hluta eða í heild löggjöfina um auðlegðarskatt, eða ef menn vildu ekki fara í auðlegðarskattinn að fjármagna það með því að falla frá óþarfri lækkun á veiðigjaldi nú þegar afkoman á sjávarútvegnum er jafn gríðarlega mikil og raun ber vitni.