virðisaukaskattur o.fl.
Frú forseti. Ég ætla að gefa hv. þingmanni færi á að ræða aðeins meira um hringlandaháttinn í sambandi við þessi mál. Ég var rifja hérna upp textann á bls. 207 og 208 í fjárlagafrumvarpinu, í greinargerð með fjárlagafrumvarpinu. Mér telst svo til að á þessum tveimur blaðsíðum séu fjórar rangar fullyrðingar sem svo ekki stóðust þegar frumvarpið kom fram og tekjuöflunarfrumvörp því tengd. Það stendur hér í fyrsta lagi að neðra þrepið hækki úr 7% í 11% eins og frægt er orðið. Svo komu frumvörpin fram og þá var það orðið 12%. Það stendur í öðru lagi að breytingar varðandi þrengingu á undanþágum í ferðaþjónustu skuli taka gildi 1. apríl 2015. Frumvörpin komu fram og þá var þetta allt í einu orðið 1. maí. Það stendur í þriðja lagi, sem er afar athyglisvert, með leyfi forseta:
„Vegna kerfisbreytingarinnar munu aðeins standa eftir almenn vörugjöld á mat- og drykkjarvöru sem inniheldur sykur eða sætuefni.“
Með öðrum orðum: Sykurskatturinn átti að vera inni þegar fjárlagafrumvarpið er sett saman og greinargerðinni lokað.
Í fjórða lagi stendur svo aðeins neðar:
„Krónutölugjöldin svokölluðu, þ.e. þau vörugjöld sem eru föst krónutala á magneiningu, teljast til skatta á vörur og þjónustu og er gert ráð fyrir almennri verðlagshækkun þeirra um 2,5% í byrjun árs 2015.“
Síðan fáum við þær fréttir að þetta eigi að vera núll. Hér eru fjórar fullyrðingar í greinargerð með sjálfu fjárlagafrumvarpinu sem reynast svo ekki innstæður fyrir þegar frumvörpin koma fram.
Það sem er auðvitað athyglisverðast til dæmis með sykurskattinn er að það skuli samt sem áður ekki vera nokkur leið að fá breytingu á því fráleita ákvæði vitandi að Framsóknarflokkurinn er veikur fyrir því að viðhalda einhverjum sykurskatti, og úr því menn voru búnir að fallast á að hann fengi að vera áfram þegar texti greinargerðar fjárlagafrumvarpsins er saminn. Kann hv. þingmaður einhverjar skýringar á því af hverju þetta er svona strembið og getur hann (Forseti hringir.) kannski veitt okkur smá umsögn um þessi vinnubrögð?