144. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2014.

virðisaukaskattur o.fl.

2. mál
[17:23]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég hlýt að taka undir með hv. þingmanni sem hér talaði á undan en því miður er þetta mynstur sem er ekki bara í þessari umræðu, þ.e. að hv. þingmenn meiri hlutans og sérstaklega hæstv. ráðherrar séu ekki á staðnum, heldur birtist líka í þeim svörum sem okkur þingmönnum berast eða berast ekki, með þeim fyrirspurnum sem við höfum lagt inn. Ég nefni sem dæmi fyrirspurn sem ég lagði fram um skuldaleiðréttingamálin þar sem ég óskaði frekari upplýsinga um þau mál og fékk það svar að von væri á skýrslu í vor.

Ég vitnaði til annarrar fyrirspurnar sem ég lagði fram í október um sóknaráætlun skapandi greina sem hæstv. ríkisstjórn hefur nú 15 daga til að leggja fram; svarið átti víst að líta dagsins ljós á þessu ári samkvæmt áramótaáætlun hæstv. forsætisráðherra. Það bólar ekki á því þannig að ég hlýt að gera þá kröfu, og er raunar búin að því nokkrum sinnum, að hv. forsætisnefnd taki það til alvarlegrar umræðu hvernig samskiptum í þessum þingsal er háttað og hvort hæstv. ráðherrar eigi til að mynda að komast upp með að svara ekki spurningum þingmanna; við erum kjörin til að leggja fram fyrirspurnir til að hafa aðhald með stjórnarmeirihlutanum.