ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2015.
Herra forseti. Þetta var mjög dramatísk ræða sem hv. þingmaður flutti. Ég er mikill aðdáandi getu hennar til að draga hlutina upp með dramatískum hætti svo sem hún gerði. Ég vona samt sem áður að framtíðarsýnin sem hún sér liggja fyrir leiði ekki til þess að hún hverfi af landi brott. Það yrði mikil eftirsjá að henni úr íslenskum stjórnmálum. Nóg um það.
Ég er þeirrar skoðunar að það sé kannski fulllangt gengið að halda því fram að ríkisstjórnin vinni markvisst að því að auka stéttaskiptingu. Ég tel að engin ríkisstjórn leggi það beinlínis fyrir sig að vinna að slíku markvisst. Hins vegar er það þannig að algjör skil eru á milli þeirrar hugmyndafræði sem ég til dæmis fylgi og tel að hv. þingmaður geri að mörgu leyti líka annars vegar og hins vegar þeirrar sem ríkisstjórnin vinnur að. Við sjáum forgangsröðunina birtast í því að hæstv. ríkisstjórn lét það verða sitt fyrsta verk að lækka veiðigjald, hún hefur gert það fjórum sinnum samtals á tiltölulega stuttum ferli, afleggja auðlegðarskattinn og við sjáum með hvaða hætti hún leggur verk sín fyrir okkur núna. Þar er auðvitað langverst að sjá aukna þátttöku sjúklinga í kostnaði gagnvart heilbrigðiskerfinu og svo er það náttúrlega matarskatturinn.
Ég tel miklu frekar að það séu röng lífsviðhorf sem liggja þarna bak við en að menn vilji beinlínis efla stéttaskiptingu í landinu. En hv. þingmaður í sinni dramatísku ræðu eiginlega kom þar hæst að hún sagðist telja að fram undan kynni að vera það sem mig minnir að hún hafi orðað eiginlega hrun á heilbrigðiskerfinu. Og hvað finnst hv. þingmanni réttlæta að taka svo sterkt til orða?