störf þingsins.
Virðulegur forseti. Það hefur ekki farið sérstaklega mikið fyrir þeirri frétt að bankarnir juku vaxtamun fyrir nokkrum dögum í kjölfar stýrivaxtalækkunar Seðlabankans. Þetta þýðir að heimilin verða af hundruðum milljóna króna. Þetta er gjöf bankanna til almennings í landinu í jólamánuðinum. Flestir eru þeirrar skoðunar að vaxtalækkanir Seðlabankans eigi að skila sér til almennings en raunin er sú að hún skilar sér fyrst og fremst til bankanna sem auka vaxtamun á inn- og útlánum. Þetta eru kaldar kveðjur til launþega sem berjast fyrir bættum kjörum sínum. Þetta eru líka kaldar kveðjur til stjórnvalda sem hafa beitt sér fyrir skuldaleiðréttingu. Í raun eru þetta óþolandi skilaboð fyrir þá kjarasamninga sem í hönd fara.
Ég vil gera orð formanns VR, Ólafíu B. Rafnsdóttur, að mínum. Hún segir, með leyfi forseta:
„Við hljótum að spyrja á hvaða forsendum bankarnir tóku þessa ákvörðun. Það er erfitt að sjá að það hafi verið í þágu okkar viðskiptavinanna. Fyrirheit um aukinn kaupmátt launafólks verða að engu þegar bankarnir geta með einu pennastriki tekið ávinning vaxtalækkana til sín á þennan hátt.“
Það er ekki úr vegi að minna á siðareglur ríkisbankans, Landsbankans, í tilefni af auknum vaxtamun bankans. Þar segir að bankinn starfi af fagmennsku þar sem borin sé virðing fyrir viðskiptavininum, samskipti bankans við viðskiptavini eigi að helgast af heilindum þannig að hagur beggja sé tryggður, hlustað sé á þarfir viðskiptavinanna og að bankinn vilji ávinna sér traust þeirra. Það verður hver og einn að svara þeirri spurningu hvort millifærsla á fjármunum upp á hundruð milljóna sem smeygt er inn bakdyramegin sé líkleg til að auka traust milli bankans og viðskiptavinanna.