144. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2014.

störf þingsins.

[10:43]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Herra forseti. Landsbyggðin hefur mjög lengi átt undir högg að sækja. Við höfum sett á stofn ýmis verkefni eins og sóknaráætlun, það er unnið eftir byggðaáætlun og það hefur verið mikil ánægja meðal allra sveitarstjórnarmanna og fólks á landsbyggðinni með sóknaráætlun. En hún hefur verið skorin niður við trog af þessari ríkisstjórn. Stjórnarandstaðan hefur tvö ár í röð í fjárlögum þurft að berjast fyrir því að ná sóknaráætlun úr 15 milljónum upp í 100. Árið 2013 var hún komin upp í 400 milljónir og átti að fara stighækkandi.

Nú bregður svo við að norðvesturnefnd skilar frá sér tillögum, nefnd sem forsætisráðherra skipaði korter fyrir sveitarstjórnarkosningar. Var kynnt í Skagafirði fyrir kosningar að til stæði að flytja þjónustuver Landhelgisgæslunnar í Skagafjörðinn. Þetta varð til þess að framsóknarmenn unnu drjúgan meiri hluta á Sauðárkróki, í Skagafirði. Svona starfar Framsóknarflokkurinn þvert á alla byggðastefnu til fjölda ára en landsbyggðin á skilið önnur vinnubrögð.

Ég hef með fjölda annarra barist fyrir því að fá störf út á landsbyggðina, að styrkja atvinnu og fjölga opinberum störfum, en með svona vinnubrögðum fær þessi byggðastefna og það að reyna að ná störfum út á land á sig neikvæðan svip. Þessi vinnubrögð eru ekki til sóma. Við eigum að vinna með þeim verkfærum sem við höfum, eins og sóknaráætlun, með sveitarstjórnarmönnum en ekki taka eitthvað eitt út fyrir sviga til að Framsóknarflokkurinn geti unnið í kosningum, hvort sem er í sveitarstjórnar- eða alþingiskosningum, með yfirboðum um heimsmeistara … (Gripið fram í: Það er búið að redda því.) Það er ekki búið að redda því, hv. þingmaður. (Forseti hringir.) Menn eru eilíft með yfirboð en menn geta ekki starfað svona endalaust án þess að eitthvað brotni niður.