störf þingsins.
Hæstv. forseti. Ég kem hérna upp þar sem líður nú senn að jólahátíð og fólk er byrjað að ferðast. Það þarf að komast í kaupstað, aðrir eru á leið til þess að vera með fjölskyldu sinni yfir hátíðar og svo getur alltaf eitthvað komið upp á sem kallar á ferðalög. Sem íbúi á snjóþungu svæði og um 100 kílómetra frá næsta þéttbýli, sem þekkir vel til þess að þurfa að hlaupa út eftir miðnætti á gamlárskvöld til að aðstoða ferðalanga, langar mig að biðja ykkur að fara varlega á ferðinni í þessu veðri. Snjóflóð, skaflar, hálka og ísing eru hlutir sem við þekkjum á nærri hverju ári. Um land allt eru staðir þar sem símasamband næst ekki og því enn hættulegra að vera að fara út á þjóðveginn í langferð. Ef nauðsyn þykir að ferðast þrátt fyrir slæmar aðstæður vil ég biðla til fólks um að vera vel útbúið því að allt of oft þarf að aðstoða fólk sem hefur ekkert hugsað um útbúnað á bílum sínum. Einnig er mikið öryggisatriði að ökumenn séu vel vakandi og að kunnátta ökumanns og farþega á svona ferðum og viðbrögðum ef eitthvað kemur upp á sé mikil.
Nú hefur verið mikið að gera hjá björgunarsveitum. Meðfram því að aðstoða fólk í umferðinni á hálendinu og bjarga fjúkandi eignum eru þær að hjálpa til við sjúkraflutninga og það í bland við færð og veður gerir það enn hættulegra að stóla á björgun um leið og eitthvað kemur fyrir.
Það er óþarfi að taka áhættu. Vinsamlegast fylgist vel með skiltum sem loka heiðum og hálsum. Á vedur.is, vegagerdin.is og símleiðis er hægt að fylgjast með veðri, færð og spá. Það skilja það allir þótt þeir komist ekki vegna óveðurs, snjóflóðahættu og ófærðar og ekkert er svo mikilvægt að það sé þess virði að setja líf sitt og jafnvel annarra í hættu. Því miður breytum við ekki veðrinu. Allir þeir sem vinna við vegagerð, snjómokstur og björgunarstörf eru að og munu gera sitt besta.