144. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2014.

virðisaukaskattur o.fl.

2. mál
[11:19]
Horfa

Guðmundur Steingrímsson (Bf):

Virðulegi forseti. Ég kann ekki tollskrárnúmerin utan að en gat mér þess einmitt til að þetta væri tillaga um afnám tolla á matvælum. Við í Bjartri framtíð erum mjög fylgjandi því að farið verði í svoleiðis aðgerðir. Því miður sjáum við okkur ekki fært að samþykkja það sem tillögu á milli umræðna. Maður þyrfti þá að éta ofan í sig allar yfirlýsingar um að stjórnmál eigi að einkennast af ábyrgð og samráði. Ég held að í þessar breytingar verðum við að fara með lengri fyrirvara en tek hins vegar undir þau sjónarmið að það væri verulega góð mótvægisaðgerð við hækkun á matarskatti og bara verulega góð aðgerð fyrir mannlífið í landinu og heimilin að fara í að lækka tolla á matvælum.

En við sitjum hjá í þessu.