144. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2014.

uppbygging innviða vegna atvinnustarfsemi í landi Bakka.

404. mál
[11:54]
Horfa

Kristján L. Möller (Sf):

Hæstv. forseti. Aðeins nokkur orð um það frumvarp til laga sem hér er á dagskrá og þá breytingartillögu sem flutt er af allri atvinnuveganefnd um þetta tæknilega atriði, að verkefnið varðandi lán vegna hafnarframkvæmda sé auðvitað á forræði fjármálaráðherra en ekki atvinnuvegaráðherra eins og kom fram. Þetta er sjálfsögð og góð breyting en það sem ég vil gera að umtalsefni er að sá ívilnunarsamningur sem gerður var vegna uppbyggingar á Bakka við Húsavík á vegum fyrirtækisins PCC BakkiSilicon hf. er ansi merkileg samþykkt sem gerð var vegna þess að þá þótti það nýmæli að ívilnunarsamningur ríkisins var tilbúinn löngu á undan verktökunum og framkvæmdaraðilanum en með þeim sjálfsagða fyrirvara að ekkert af þessu tæki gildi og færi í gang fyrr en búið væri að undirskrifa samninga um framkvæmdina sem við héldum þá að væri á næsta leiti. Þess vegna eru það vonbrigði hvað það hefur tekið langan tíma að sigla þessu máli í farsæla höfn til enda en vonandi sér fyrir endann á því á næstu vikum, leyfi ég mér að halda. Ég ætla ekki að tala um mánuði.

Þetta er ákaflega mikilvægt skref í uppbyggingu á þessu svæði sem menn hafa sagt að gæti orðið eitt mesta uppbyggingarsvæði landsins á komandi árum með virkjunarframkvæmdum á svæðinu, á norðausturhorninu, á Þeistareykjum þar sem Landsvirkjun ætlar að reisa allt að 200 megavatta virkjun. Þess vegna vil ég líka, virðulegi forseti, geta um það álit sem kom frá Eftirlitsstofnun Evrópu, ESA, í vikunni, ef ég man rétt, þar sem hún spyr um frekari gögn og upplýsingar varðandi þetta mál. Ég vek sérstaklega athygli á því að ESA segir að hún noti þessa aðferð til að óska eftir frekari gögnum til málsins. Það er ekki neitt stórkostlegt í hættu að mínu mati hvað þetta varðar. Ég treysti því og veit að Landsvirkjun er með allt á kláru hvað það varðar. Landsvirkjun hefur sagt að þetta sé einn besti orkusamningur sem hún hafi gert við stóriðju á landinu hvað verð snertir. Þess vegna kvíði ég því alls ekki að þessi athugasemd frá ESA og ósk um frekari gögn muni setja eitthvert stopp í málið.

Það hefur komið fram að ef til vill sé ESA að meta heildarkostnaðinn við að byggja 200 megavatta virkjun á Þeistareykjum og skoða þá tölu og kann að gera einhverjar athugasemdir við orkuverð í fyrsta samningi sem er upp á 45 megavött. Þess vegna segi ég að ég kvíði því ekki þegar Landsvirkjun sendir þeim gögn og fylgir málinu eftir, vonandi með fundum, skýringarfundum eins og mig minnir að það sé kallað hjá þessu batteríi, að þar verði farið í gegnum þau og menn sjái að orkusamningurinn er góður og að ekki sé verið að selja þar neina orku á undirverði. Hið sama á við um Landsnet. Menn verða að horfa á þetta í heild sinni, þ.e. 200 megavatta virkjun í heild og þau fyrirtæki sem eru í raun í biðstöðu og munu koma fleiri eftir að PCC hefur framkvæmdir á Bakka.

Það virðist stundum þurfa mikla frumkvöðla, eins og PCC er sem vill byggja verksmiðjuna þarna, til að hefja starfsemi og þá komi fleiri á eftir. Ég nefni franska fyrirtækið Saint Gobain sem ég held að komi fljótlega þar á eftir. Ég vil segja við þessa umræðu og segja það við íbúa á þessu svæði, sem auðvitað hafa áhyggjur vegna þess hvað þetta hefur dregist og verða vonsviknir, að ég tel enga ástæðu til þess. Ég veit það og það vitum við sem erum á þessu svæði að Landsvirkjun er á fullu í framkvæmdum á Þeistareykjasvæðinu. Það hafa verið boðin út túrbínukaup og eru komin tilboð í það verkefni. Mér er ekki alveg kunnugt um hvort búið er að taka tilboðinu en framkvæmdin er á fullu hvað þetta varðar og eingöngu beðið eftir að fjármögnunarsamningi ljúki hér heima við nokkra lífeyrissjóði og ef til vill banka.

Því er lokið í Þýskalandi, 85% af verkinu, ef ég man rétt, og þessar viðræður verða til lykta leiddar sem allra fyrst þannig að full fjármögnun sé klár og að Landsvirkjun muni svo á sinn góða, faglega hátt sýna fram á það við ESA að þetta verkefni standist alla skoðun hvað varðar orkusamning og verð fyrir selda orku. Ég er því áfram mjög bjartsýnn á að þessi framkvæmd fari í gang þó að ég sé óþolinmóður sjálfur, hefði viljað að þetta væri komið í gang. Þjóðverjarnir sem eru að framkvæma þetta eru mjög nákvæmir og vinna mjög markvisst og skipulega. Þetta mál verður áreiðanlega leitt til lykta fljótlega. Þess vegna fagna ég því líka að Alþingi sé sammála um að framlengja ívilnunarsamning síðustu ríkisstjórnar sem var gerður um þetta verkefni til loka næsta árs og að verkið geti sem sagt hafist sem allra fyrst og samningum ljúki sömuleiðis.

Virðulegi forseti. Ég er þess vegna aðili að þessari breytingartillögu, var aðili að frumvarpinu og hvet til þess að það verði samþykkt sem allra fyrst.