144. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[15:39]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Brynhildur Pétursdóttir) (Bf):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti 3. minni hluta fjárlaganefndar.

Minni hlutinn stendur saman að breytingartillögum sem lagðar voru fram fyrir 3. umr. Ég ætla að fara aðeins yfir þær breytingartillögur, mér finnst þær mjög mikilvægar. Það er meðal annars það að skattur sem hingað til hefur verið kallaður sykurskattur, og lagt er til að muni heita sykurgjald, verði ekki afnuminn og mundi það skila 3 milljörðum í ríkissjóð á árinu 2015. Við leggjum til að þeir 3 milljarðar verði veittir í heilbrigðiskerfið og höfum deilt þeim út eftir bestu getu á spítala. Þannig verði veittar 500 millj. kr. í geðheilbrigðisþjónustu, heilsugæslu í Reykjavík, S-merkt lyf og þar fram eftir götunum, heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni. Við teljum mjög mikilvægt, þar sem fjárskortur er víða í heilbrigðiskerfinu, að nýta þennan skatt vegna þess að neysla á sykri getur leitt til ýmissa sjúkdóma, það væri því eðlilegt að þetta færi inn í heilbrigðiskerfið. Ég varð fyrir vonbrigðum hér í dag þegar breytingartillagan, sem minni hluti efnahags- og viðskiptanefndar lagði fram um að þessir 3 milljarðar yrðu áfram inni í ríkissjóði, var felld. Það finnst mér ekki lýsa mikilli framsýni.

Við í minni hlutanum lögðum til við 2. umr. að útvarpsgjaldið héldist óbreytt á næsta ári til að mæta þeim mikla rekstrarvanda sem Ríkisútvarpið stendur frammi fyrir. Sú tillaga var felld. Við gerum því núna aðra tilraun sem felst í því að útvarpsgjaldið verði óbreytt hálft árið þannig að Ríkisútvarpið fái smá aðlögunartíma vegna þess að þessi niðurskurður kallar á miklar breytingar. Ég vona í það minnsta að þó að þetta sé kannski ekki það sem við vildum muni þingmenn hér á eftir eða þegar við greiðum atkvæði um fjárlögin vera jákvæðir gagnvart þeirri tillögu.

Meiri hlutinn tók tillit til tveggja breytingartillagna minni hlutans við 2. umr. Það varðaði málefni hælisleitenda, er það vel, og að hluta varðandi úrræði fyrir þolendur kynferðisofbeldis, en við mundum vilja gera betur þar.

Miðað við tölur núna varðandi heildartekjur og heildargjöld ríkissjóðs er áætlað að heildarjöfnuður verði rétt tæpir 3,6 milljarðar á næsta ári, það má því ekki mikið út af bregða ef reksturinn á að vera hallalaus. Svigrúmið til að greiða niður skuldir ríkissjóðs er afar lítið, en mikið hefur verið talað um að það sé mjög mikilvægt, ég heyri ekki annað á hæstv. fjármálaráðherra í það minnsta, en á sama tíma hafa stjórnvöld tekið ákvörðun um að fara í mjög umfangsmiklar og dýrar skuldaniðurfellingar á verðtryggðum fasteignalánum. Hefði þeim peningum verið betur varið í að greiða niður skuldir ríkissjóðs og lækka gríðarlegan vaxtakostnað. En það var ekki gert.

Á síðasta kjörtímabili var farið í að breyta vinnulagi í fjárlaganefnd þannig að ýmsum safnliðum var vísað til ráðuneytanna. Hugmyndin með því var að tryggja jafnræði meðal umsækjenda og vandaðri stjórnsýslu. Það kom okkur í minni hlutanum því verulega á óvart hversu margir slíkir liðir voru í breytingartillögu meiri hlutans við 2. umr. Ekki hefur farið fram nein umræða í nefndinni um að breyta þessu vinnulagi. Við gagnrýndum þetta við 2. umr. en núna við 3. umr. leggur meiri hlutinn til að veita enn fleiri slíka styrki án þess að nefndarmenn hafi séð umsóknir eða rökstuðning eða annað sem á alltaf að liggja fyrir þegar opinberu fé er útdeilt. Því er greinilega verið að hverfa frá fyrra fyrirkomulagi sem ég nefndi áðan sem er ætlað að tryggja jafnræði og fagleg vinnubrögð. Er það mjög miður og kemur á óvart því að í sömu andrá er talað um aga og ábyrgð og alls konar orð notuð í því samhengi. Þetta lýsir ekki aga.

Ríkisútvarpið. Við höfum mikið rætt um það í þingsal og þau áform stjórnvalda um að lækka útvarpsgjaldið. Það lækkar ekki bara á næsta ári úr 19.400 kr. í 17.800 kr. heldur lækkar það niður í 16.400 árið 2016. Ráðast þarf í mikinn niðurskurð og breytir engu þótt útvarpsgjaldið eigi nú að renna allt til Ríkisútvarpsins. Þetta mun hafa umtalsverð áhrif á reksturinn. Við vitum ekkert enn þá hvað það er sem á undan að láta. Það er eitt mjög athyglisvert í þessu máli. Þverpólitísk stjórn stendur sameinuð gegn þeim áformum og ekki nóg með það, heldur eru í stjórninni eins og margir muna, kannski man það enginn, en það endaði þannig að meiri hlutinn mátti tilnefna sex í stjórnina og minni hlutinn þrjá. Þetta var gagnrýnt á sínum tíma. Meiri hlutinn á þarna mikinn meiri hluta í stjórninni en virðist einhvern veginn ekki taka mark á eigin fulltrúum í stjórn Ríkisútvarpsins. Það finnst mér merkilegt.

Það er líka eins og meiri hlutinn virðist ekki trúa því að búið sé að velta við öllum steinum í rekstri Ríkisútvarpsins og vandinn sé fyrst og fremst rekstrarvandi. Í nefndaráliti meiri hlutans hjó ég eftir einni setningu sem er svona, með leyfi forseta:

„Heildartekjur stofnunarinnar hafa aldrei verið meiri heldur en nú, en á móti vegur að á síðasta rekstrarári hækkuðu almenn rekstrargjöld um 325 millj. kr. milli ára, eða um 7%. Hlutfallslega er hækkunin mest vegna yfirstjórnar (40%) og dreifikerfisins (35%).“

Þriðji minni hluti telur að þessi athugasemd meiri hlutans um stjórnarkostnað sé svolítið villandi. Á síðasta rekstrarári voru gerðar miklar breytingar á yfirstjórn Ríkisútvarpsins. Sem dæmi störfuðu þrír útvarpsstjórar á tímabilinu, það hefur kostnað í för með sér, biðlaun og annað slíkt. Hækkun á þessum lið getur alveg átt sér eðlilegar skýringar og er allt of snemmt að segja til um það núna hvort þessar aðgerðir koma til með að auka rekstrargjöldin eða draga úr þeim til lengri tíma. Ég minni bara á það enn og aftur að ríkisstjórnin sjálf hefur aukið útgjöld sín mjög mikið. Ef ég man rétt er um 34% aukning frá árinu 2012 fram á næsta ár. Framlög liða undir heitinu Ríkisstjórnin hækkuðu á árinu 2013, sem er eðlilegt vegna þess að þá var kosningaár. Alltaf þegar mannabreytingar verða kallar það á kostnað sem hefur síðan ekki lækkað eins og hann ætti að gera eftir það. Ég verð því að segja við stjórnvöld, og meiri hlutann, að þau ættu að líta sér nær í þessu máli.

Við höfum rætt mikið um hækkun virðisaukaskatts á matvæli og menningu úr 7% í 11%. Ég hef gagnrýnt það að mér finnst ekki liggja fyrir ítarlegar greiningar á því hvernig þessi hækkun muni koma við einstaka tekjuhópa, en þó eru vísbendingar um að tekjulágir eyði hlutfallslega stærri hluta ráðstöfunartekna sinna í mat en aðrir tekjuhópar. Þessi mótvægisaðgerð að setja milljarði meira í barnabætur og 400 millj. kr. meira í húsaleigubætur getur með engu móti talist fullnægjandi. Það eru margir hópar sem í rauninni njóta ekki þessara bóta en hækkun matvælaverðs kemur niður á öllum.

Þá vekur einnig athygli að ekki eru nein áform um að lækka eða fella niður innflutningstolla á landbúnaðarafurðir en slík aðgerð gæti haft veruleg áhrif til lækkunar matarverðs og verið raunveruleg mótvægisaðgerð.

Ríkisstjórnin brýtur ýmsa samninga sem gerðir hafa verið við aðila vinnumarkaðarins, svo sem með því að afnema ríkisframlag til jöfnunar örorkubyrði almennra lífeyrissjóða frá og með miðju ári 2015. Mér finnst það alveg óskiljanleg aðgerð. Verið er að stytta atvinnuleysisbótatímabilið í tvö og hálft ár án nokkurs samráðs og enn og aftur svikist um að setja samningsbundið framlag af tryggingagjaldi í starfsendurhæfingu í gegnum VIRK Starfsendurhæfingarsjóð. Þetta viðhorf ríkisvaldsins til gerðra samninga er mikið áhyggjuefni og er til þess fallið að grafa undan trausti.

Það er í rauninni alvarlegt þegar bæði Samtök atvinnulífsins og samtök launþega eins og ASÍ tala um það opinberlega að ekki sé hægt að treysta stjórnvöldum í þessu máli. Ég held við verðum að taka það alvarlega.

Þá er ríkisstjórnin einnig í óða önn að breyta tryggingagjaldi í launaskatt frá því að vera gjald sem rennur til mikilvægra mála í þágu atvinnulífsins. Ég er hissa á því að ekki skuli gengið lengra í að lækka tryggingagjaldið.

Staða Íbúðalánasjóðs er verulegt áhyggjuefni og við höfum aðeins rætt það í dag. Rekstraráætlun liggur fyrir sem gerir ráð fyrir 3 milljarða kr. árlegu rekstrartapi næstu fimm árin, eða alls 15 milljarða kr. tap. Það eru engar smá upphæðir sem hér um ræðir. Í tillögum meiri hlutans er ekki að finna nein varanleg úrræði til að bregðast við því fjárhagstjóni sem af þessu hlýst fyrir ríkissjóð.

Í minnisblaði fjármála- og efnahagsráðuneytisins til fjárlaganefndar frá 28. nóvember sl. kemur fram að vandamál Íbúðalánasjóðs liggi í ófullnægjandi vaxtamun, viðvarandi vanskilum skuldara og afskriftaþörf veittra lána sem hafi leitt til kostnaðarsamra yfirtöku fullnustueigna. Þá valdi uppgreiðslur veittra lána kostnaði fyrir sjóðinn þar sem skuldir hans eru óuppgreiðanlegar og hann getur ekki endurfjárfest laust fé á sömu kjörum og eru á skuldum sjóðsins. Ríkissjóður ber áhættuna af rekstri sjóðsins þar sem skuldir hans eru með ríkisábyrgð. Uppsafnað tap frá og með árinu 2008 er um 60 milljarðar kr. Staða sjóðsins hefur verið þekkt í nokkuð langan tíma en engar raunhæfar tillögur til lausnar vandanum hafa verið lagðar fram af hálfu ríkisstjórnarinnar.

Ég ætla ekki að gera lítið úr Íbúðalánasjóði eins og hann leggur sig, þetta er mjög erfitt mál. En það er samt eins og allir forðist á vissan hátt að taka ákvörðun. Ég held að ganga þurfi einhvern veginn í þetta mál af aðeins meiri krafti. Einhver nefnd var reyndar að störfum, ég veit svo ekkert hvað kom út úr því, einhverjir alþingismenn voru í henni og maður bjóst við niðurstöðum. Ég veit ekki hvort þetta er eitt málið þar sem eru endalaust skipaðar nefndir. Ég held að við þurfum að sameinast í málinu og horfast í augu við það að engin auðveld lausn er til en við þurfum að ganga í þetta, vegna þess að þetta er peningahít, Íbúðalánasjóður eins og hann er núna. Við stöndum okkur ekki gagnvart skattgreiðendum ef við látum þetta dankast áfram. Við þurfum að taka málið föstum tökum á næsta ári. Ég styð stjórnvöld í því að koma inn með einhverjar tillögur og þær verða örugglega óvinsælar vegna þess að allir hafa sína skoðun á Íbúðalánasjóði, en ekki er hægt að ýta þessum vanda endalaust á undan sér, það er bara þannig.

Í nefndaráliti meiri hlutans er vakin athygli á því að áform um smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju eru óbreytt og að unnið verði að fjármögnunarleiðum samhliða undirbúningi útboðs á fyrri hluta komandi árs. Það sem vekur athygli er að ekki er gert ráð fyrir neinum fjárveitingum í það verkefni á fjárlögum, við gagnrýnum það. Þetta eru einkennileg vinnubrögð.

Bankasýsla ríkisins. Við höfum rætt málefni Bankasýslunnar í gær og í dag líka. Ekki er gert ráð fyrir því í fjárlögum að Bankasýsla ríkisins starfi áfram á næsta ári. Þegar ég skrifaði og skilaði inn nefndaráliti mínu seint í gærkvöldi vissi ég ekki betur en að staðan væri þannig. Flytja átti frumvarp á haustþingi sem miðaði að því að leggja Bankasýsluna niður og færa umsýsluna til fjármála- og efnahagsráðuneytisins en ekki varð af því einhverra hluta vegna. Því vakti það spurningar hjá okkur í minni hlutanum af hvaða fjárlagalið laun og annar rekstrarkostnaður ætti að vera tekinn á næsta ári. Við kölluðum því eftir fundi sem haldinn var í gær sem var, held ég, mjög gagnlegur fundur. Gagnrýnin snerist að því að á sama tíma og ekki væri gert ráð fyrir framlagi til Bankasýslunnar á fjárlögum væri samt ekki búið að leggja hana niður. Fólk er þar að störfum og ekki er búið að segja því upp að mér vitanlega. En mér skilst að þessu verði breytt. Síðan getum við tekist á um það hvort við viljum hafa Bankasýslu eða ekki, en vinnubrögð eins og þessi eru ekki til eftirbreytni.

Við höfum rætt aðeins í dag um málefni Háskólans á Akureyri. Það var skilningur minn að þær 30 milljónir sem hafa verið á fjáraukalögum síðustu ár, sú tala komi föst inn núna en ætti ekki í rauninni að vera skilyrt nema til rannsóknarmissira og stoðþjónustu. Í skýringartexta er talað um að hluti þessara 30 milljóna eigi að renna í norðurslóðamálefni og 10 milljónir í rannsóknarmissiri. Þar er verið að seilast mjög langt í að hafa afskipti af menntastefnu skólans. Höfum við því lagt á það áherslu að þessum skýringartexta verði breytt. Ég stóð í þeirri trú eftir samtal mitt við hæstv. formann fjárlaganefndar að það yrði gert þó svo það yrði gert í ræðu. Þess vegna kom okkur á óvart fyrr í dag þegar hv. formaður fjárlaganefndar gerði það ekki. Munum við því flytja breytingartillögu sem ég vona að verði samþykkt.

Skipting, sem mikið hefur verið rædd, 617 milljóna til háskólanna hefur verið gagnrýnd og bent á að þriðji stærsti háskólinn fékk 10 milljónir af þessum lið, en ákveðið var eftir á að greiða fyrir umframnemendur gagnstætt því sem hafði verið gert ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu. Þá vil ég aðeins í því samhengi segja, jú, það var gott að settir voru meiri peningar í háskólann þó að ég hefði gjarnan viljað sjá skiptinguna öðruvísi. Ég geri ráð fyrir að það sé til dæmis misjafnt eftir skólum hvað hver umframnemandi kostar, eftir því sem skólinn er stærri þeim mun ódýrari er eflaust hver nemandi og alltaf er einhver stofnkostnaður. Ég átta mig ekki alveg á hvernig þetta er reiknað út, en þetta kom mér spánskt fyrir sjónir. Það sem skiptir máli er að hægt sé að treysta þeirri stefnu sem stjórnvöld marka. Maður veltir fyrir sér í næsta fjárlagafrumvarpi hverju verði þá búið að breyta frá fjárlagafrumvarpinu núna og farið að borga fyrir hvern nemenda. Eða fara menn aftur í það sem stóð í fjárlagafrumvarpinu að hækka fjárframlag fyrir hvern nemanda sem er þá kannski viss hvati fyrir skólann að taka ekki of marga nemendur? Það er mikilvægt að háskólar, sem og allar aðrar stofnanir, sjái fram í tímann hver stefnan er þannig að þeir geti aðlagað sig að henni.

Það sem mér finnst svolítið sérstakt í þessu máli og snýr að Háskólanum á Akureyri er að við höfum átt samtal við ráðuneytið og gagnrýnt það svolítið fyrir þessa skiptingu og eins þann skýringartexta sem ég talaði um áðan, en ég hef aldrei eiginlega heyrt hæstv. menntamálaráðherra koma neitt inn í þá umræðu. Hvar er hann í allri þessari umræðu? Við erum alltaf að tala við menntamálaráðuneytið. En er ekki ráðherra sá sem hefur stjórnina þar? Ég hefði haldið það.

Varðandi breytingartillögur minni hlutans, við leggjum fram þær breytingartillögur sem voru kallaðar til baka við 2. umr. Ég hef farið yfir nýja tillögu sem snýr að RÚV og svo tillögu sem snýr að því að setja meiri peninga inn í velferðarkerfið, sem eru 3 milljarðar. Við leggjum áherslu á úrræði fyrir þolendur kynferðisofbeldis. Meiri hlutinn kom að einhverju leyti til móts við þær breytingartillögur. Þær voru í heildina minnir mig 56 milljónir, en meiri hlutinn var með breytingartillögur upp á 20 milljónir. Við mundum gjarnan vilja sjá meiri pening í það mikilvæga málefni.

Ég held ég hafi þetta ekki lengra í bili.