fjárlög 2015.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Mig langar að koma aðeins inn á málefni Ríkisútvarpsins.
Mig langar að spyrja hv. þingmann út í eitt atriði — ef hún hlýðir á mig. Nú stóð til að efla ætti innlenda dagskrárgerð og byggja upp stöðvar úti um land. Hv. þingmaður þekkir til á Akureyri og öðrum stöðum, bæði fyrir norðan, vestan og austan, og að horfa ætti til þess að efla landshlutastarfsemi innan Ríkisútvarpsins og innlenda framleiðslu og barnaefni og annað því um líkt. Nú blasir við á næsta ári miðað við óbreytt fjárlög að skera þurfi mikið niður. Sér hv. þingmaður eitthvað fram á að hægt verði að standa við þau áform metnaðarfulls nýs útvarpsstjóra sem hann lagði upp með og ég var mjög ánægð að heyra? Maður varð mjög ósáttur við það þegar svæðisstöðvarnar hurfu frá landsfjórðungunum. Það var eitt af því sem við þurftum að standa frammi fyrir í erfiðum niðurskurði sem þá blasti við vegna hrunsins.
Núna treysti maður á það að nýr útvarpsstjóri hafi þennan mikla metnað fyrir hönd innlendrar dagskrárgerðar og uppbyggingu vítt og breitt um landið. Ekki veitir af að framleiða gott íslenskt efni, hvort sem það er afþreyingarefni eða fyrir börn. En nú virðist ekkert blasa annað við að óbreyttu en gífurlegur niðurskurður. Ég held að almenningur í landinu átti sig kannski ekki á því fyrr en það er orðið að veruleika. Telur hv. þingmaður að annað sé hægt að gera en að skera niður?