144. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[16:11]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Brynhildur Pétursdóttir) (Bf) (andsvar):

Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að minna mig á fjarskiptaverkefnið því að það er líka mikilvægt að geta þess sem vel er gert. Ég er mjög ánægð með að 300 milljónir skuli settar í það mjög svo mikilvæga verkefni. Ég held ég geti talað fyrir hönd Bjartrar framtíðar þegar ég segi að við styðjum uppbyggingu bættra fjarskipta á landsbyggðinni út um allt land. Það er mjög mikilvægt verkefni. Það er því vel gert og ég vona að sett verði enn meira í það á þarnæsta ári og að við náum að klára þetta verkefni, það er kominn tími til.

Varðandi Íbúðalánasjóð þá er það ekki þannig að við gætum lokað sjóðnum, það er mjög flókið jafnvel þótt við vildum það. Ef þetta færi til bankanna þá yrði það alltaf að vera þannig að það væri hreinlega í lögum að þeim væri skylt að sinna ákveðinni þjónustu. Við yrðum bara að skoða hvernig það er í öðrum löndum. Eru bankar þar að sinna öllum, þessir hefðbundnu viðskiptabankar? Eða mundum við skilja eftir einhverja litla einingu sem væri þá bara að sinna þessum hluta? Mikið af tapi Íbúðalánasjóðs er vegna verktaka sem hefðu allt eins getað verið að fá lán hjá viðskiptabönkunum. Við skulum hafa það í huga líka.