fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni svörin. Hann hefur svo sem í sínu máli komið áður að því er varðar kosningaloforð Framsóknarflokksins sem vörðuðu aðallega skuldaniðurfellingarprógrammið. Þá vil ég spyrja hv. þingmann hvort hann telji um fullar efndir að ræða miðað við það sem flokkurinn flaggaði í kosningabaráttunni. Menn hefur nokkuð greint á um það hvað sagt var í kosningabaráttunni og síðan hvað kom upp úr pokanum þegar prógrammið var kynnt. Þetta er í fyrsta lagi.
Svo hins vegar er það sem ekki var í kosningaloforðunum, eða kosningahótununum liggur manni við að segja miðað við sumt af því sem við sjáum hér. Hér situr hv. þingmaður og aðstoðarmaður forsætisráðherra, Ásmundur Einar Daðason, og ég spyr: Minnist hv. þingmaður þess að í kosningastefnuskrá Framsóknarflokksins hafi komið fram eitthvað um að framsóknarmenn væru hættir að nenna að styðja RÚV? Kom fram eitthvað um að til stæði að loka framhaldsskólunum fyrir 25 ára og eldri? Kom fram eitthvað um það að þeir hygðust stytta einhliða atvinnuleysisbótatímabilið? Komu fram einhverjir þessara þátta sem fela samt í sér grundvallarbreytingar á íslensku samfélagi?
Af því að hv. þingmaður hefur haldið því vel til haga að hrósa ríkisstjórnarflokkunum fyrir það að uppfylla tiltekin kosningaloforð, eins og til að mynda það að gera vel við útgerðina og þennan þátt, vil ég líka velta upp þeirri spurningu hvort menn gangi hreint fram með því að halda fyrir aftan bak svo skýrum stefnumiðum. Það virðist ekki vefjast mikið fyrir þessum ríkisstjórnarflokkum að koma sér saman um miklar vendingar og þar með talið hækkun á matarskatti (Forseti hringir.) sem einhvern tímann hefði valdið svefnlausum nóttum hjá framsóknarmönnum.