144. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[16:52]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Oddný G. Harðardóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það er ýmislegt sem ég hef við hana að athuga, en ég ætla að einbeita mér að tveimur atriðum í þessum andsvörum.

Í fyrsta lagi vil ég spyrja hv. þingmann út í þá menntastefnu sem kemur fram í fjárlagafrumvarpinu, þetta er stefna sem hefur ekki verið rædd og gengur út á það að meina nemendum sem eru 25 ára og eldri að sækja bóknám í opinberum framhaldsskólum. Ég vil spyrja hv. þingmann hvernig hann sjái fyrir sér að það fari með litla skóla úti um landið. Nú þekkir hv. þingmaður ágætlega til skóla í sínu kjördæmi og sumir skólarnir þar fara illa út úr þessum fjöldatakmörkunum, en með þeim er verið að greiða fyrir kjarasamninga kennara. Það er hærri upphæð borguð með hverjum nemanda en þeim er fækkað. Ég vil spyrja hv. þingmann hvernig honum hugnist sú skólastefna sem birtist í fjárlagafrumvarpinu.