fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Þetta hefur verið talsvert til umræðu í fjárlaganefnd. Eins hefur þetta borið á góma, hygg ég og hef heyrt af því, í hv. allsherjar- og menntamálanefnd. Mörg af þeim atriðum sem hv. þingmaður bendir á er ástæða til þess að skoða og halda áfram að skoða. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að við eigum að vera opin fyrir breytingum og hæstv. menntamálaráðherra hefur m.a. komið inn á það að markmiðið sé að koma til móts við þessa hópa með öðrum hætti.
Varðandi fullyrðinguna um kjarasamninga kennara þá hef ég ekki tíma til þess að koma inn á það í mínu fyrra andsvari en vil þó segja það að þetta er tillaga meiri hluta fjárlaganefndar og er sú sýn sem meiri hlutinn hefur og ég veit ekki betur en að nafn mitt sé undir öllum tillögum meiri hlutans og á nefndaráliti meiri hlutans, og sá sem (Forseti hringir.) hér stendur styður auðvitað það sem er í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2015.