fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Ég hef ekki kynnst öðru en að fundir í fjárlaganefnd hafi almennt verið góðir, alveg sama hvort minni hluti eða meiri hluti hafi beðið um þá. Það hefur verið býsna gott starf í fjárlaganefnd í allt haust og full ástæða til þess að þakka bæði meiri hluta og minni hluta fyrir það góða samstarf.
Varðandi Ríkisútvarpið get ég ekkert sagt meira en ég hef sagt áður, sá sem hér stendur er stuðningsmaður Ríkisútvarpsins og vill sjá öflugt Ríkisútvarp. Hins vegar vil ég ítreka að Ríkisútvarpið má auðvitað ekki halda að sér höndum, það þarf alltaf að vera tilbúið til þess að skoða nýjar leiðir í rekstrinum. Dreifikerfismálin voru meðal annars til umræðu og hvaða sóknarfæri geta hugsanlega verið fólgin þar. Og ég vil bara segja að sá sem hér stendur er opinn fyrir öllum tillögum. Mér fannst það koma dálítið sterkt fram og kannski áréttað af hálfu stjórnarmanna að þetta sneri kannski ekki hvað síst að árinu 2016 fremur en árinu 2015, vegna þess að Ríkisútvarpið gerir ekki upp á hefðbundnu almanaksári heldur frá (Forseti hringir.) 1. september til 1. september. (Gripið fram í.) Ég vil bara segja það aftur að ég er stuðningsmaður öflugs Ríkisútvarps og (Forseti hringir.) er tilbúinn til þess að skoða allar leiðir í því efni.