fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þetta andsvar. Hann hefur verið kraftmikill hér í umræðum að vanda. Varðandi Háskólann á Akureyri, eins og ég sagði í ræðu minni er það fagnaðarefni að við erum að setja meira fjármagn til háskólanna almennt. Við getum síðan tekist á um skiptingu fjármagnsins á milli háskóla. Varðandi það að fjárlaganefnd leggi ákveðnar áherslur í fjárlagafrumvarpinu held ég að hv. þingmaður geti ugglaust farið aftur í tímann hvað það snertir, það hefur eflaust verið gert áður í ákveðnum málum. Um það sem snýr að þessu verkefni Háskólans á Akureyri var það niðurstaða meiri hlutans að afgreiða málið með þessum hætti, og eins og ég kom inn á í fyrra andsvari er sá sem hér stendur hluti af þeim meiri hluta sem leggur fram breytingartillöguna og styður hana. En stóra málið er, og það er fagnaðarefni, að við séum að setja aukið fjármagn til háskólakerfisins í heild en við getum svo auðvitað tekist á um skiptingu á milli skóla eða hvernig það er innan skóla. (Forseti hringir.)
Varðandi seinni spurninguna verð ég að fá leyfi forseta og hv. þingmanns til þess að svara henni í næsta andsvari.