144. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[17:10]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég fyrirgef það alveg að þingmaðurinn hefur nauman tíma og hann getur kannski farið í andsvar við mig því að ég mun ræða þetta mál svolítið, stóru myndina í þessu.

Í tilviki þess máls sem tengist Háskólanum á Akureyri snýst það ekki um aukið fé. Þetta snýst um það að tvö ár í röð hefur háskólinn fengið 30 milljónir með skilningi frá fjárveitingavaldinu í tiltekin verkefni önnur en kennslu, þ.e. í að fjármagna rannsóknarmissiri fastráðinna kennara og í ýmis stjórnsýslu- og stuðningsverkefni í háskólanum. Meiri hlutinn ætlar nú á þriðja ári að ákveða að 20 milljónir af 30 fari í það að kenna tiltekinn námsáfanga. Það tel ég vera brot á lögum um háskóla, það tel ég vera freklegt inngrip í sjálfstæði háskólanna og það er í óþökk stjórnenda Háskólans á Akureyri, það liggur algjörlega fyrir, þeirra hinna sömu sem hafa það vandasama verkefni að spila úr þeim fjárveitingum sem háskólinn hefur og ákveða námsframboð (Forseti hringir.) á hverju missiri fyrir sig, hvaða áfangar eru kenndir hverju sinni og hverjir ekki o.s.frv.