144. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[17:32]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil nú benda hv. þingmanni á þrígreiningu ríkisvaldsins. Við erum hluti af löggjafarvaldinu og iðulega höfum við sérmerkt fjármuni til hinna ýmsu verkefna. Við erum ekki bara að gera það til Háskólans á Akureyri, við gerðum það til Sjúkrahússins á Akureyri í síðustu fjárlagagerð, (Gripið fram í.)og við gerum það varðandi mjög marga liði.

Hv. þingmaður spyr mig um viðhorf mitt til stjórnenda háskólans. Ég styð þá eitt hundrað prósent í því að efla háskólann. Ég styð þá eitt hundrað prósent í að standa vörð um hann og að gera hann stærri og að betri menntastofnun. En alveg eins og virðuleg fyrrverandi ríkisstjórn (Gripið fram í.) leggst ég ekki flatur þó að einhver sé ósammála mér og ég er ekki viss um að hv. þingmaður hefði gert það á síðasta kjörtímabili þegar (Forseti hringir.) forstöðumenn heilbrigðisstofnana víðs vegar um landið voru (Forseti hringir.) mjög óánægðir með þær ráðstafanir sem voru gerðar (Forseti hringir.) í heilbrigðismálum.