fjárlög 2015.
Hæstv. forseti. Ég held að það sé alveg hárrétt hjá hv. þm. Össuri Skarphéðinssyni að stjórnarliðar tali eins og að hér sé allt í lukkunnar velstandi. Við þurfum dálítið að hugsa um það hvernig við skiptum þjóðartekjunum og vissulega eru mörg málefni sem þarf að setja meiri peninga í. Við getum nefnt Landspítalann og heilbrigðiskerfið sem eitt dæmi um það. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að á sama tíma og við forgangsröðum fjármununum innan lands verðum við að líta á heiminn í heild sinni og ef við lítum á hann í heild sinni er staðan ósköp einfaldlega sú að við erum meðal ríkustu þjóða heims. Þess vegna finnst mér óskaplega dapurleg pólitísk skilaboð felast í því hversu litlum fjármunum við ætlum að verja til þróunarsamvinnu og til þess meðal annars að styrkja innviði í allra fátækustu ríkjum heimsins. Ég held einmitt að hér sé okkar tækifæri sem lítillar þjóðar til þess að leggja okkar lóð á vogarskálarnar í baráttunni gegn fátækt og fyrir bættum lífskjörum fólks. Í hinu stóra samhengi eru 500 milljónir ekkert rosalega há upphæð en getur skipt mjög marga sem búa við sára fátækt úti í heimi miklu máli. Þess vegna vil ég trúa því þangað til yfir lýkur að við setjum (Forseti hringir.) þetta inn. Eigum við ekki að vera svolítið bjartsýn? Við getum það alveg.