144. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[19:23]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Brynhildur Pétursdóttir) (Bf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu. Mig langar aðeins að spyrja út í þetta mál sem snýr að Háskólanum á Akureyri. Nú skilst mér að rannsóknarmissirin sem Háskólinn á Akureyri skar niður til að hagræða og greiða niður skuldahalann kosti rúmlega 30 milljónir á ári. Þau voru síðan tekin upp aftur og sú fjárveiting sem hér er tekist á um, skilyrðinguna, kom inn til að bæta háskólanum þann kostnað og eins ýmsa stoðþjónustu.

Ég velti fyrir mér hvort hv. þingmaður sjái einhverja lausn á því máli hér, hvort hægt sé að gera einhverjar breytingar á texta eða annað, þannig að allir verði sáttir. Ég held að enginn deili um það að við viljum að Háskólinn á Akureyri sé í fararbroddi þegar kemur að málefnum norðurslóða. Þar er verið að kenna heimskautarétt og hann er með tengingar inn í margar stofnanir og hefur í rauninni verið í fararbroddi. Það hlýtur að vera vilji okkar þingmanna og ekki síður skólans sjálfs og stjórnar skólans að svo verði áfram. En mér finnst eins og hér sé verið að búa til eitthvert vandamál sem ætti í rauninni ekki að vera til staðar. Þetta snýst meira um hártoganir um orðalag. Það væri kannski fróðlegt að heyra hvaða lausn hv. þingmaður sér á þessu.