144. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[21:30]
Horfa

iðnaðar- og viðskiptaráðherra (Ragnheiður E. Árnadóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni að forsenda þess að uppbygging á nýrri atvinnustarfsemi í Helguvík geti átt sér stað er sú að til staðar séu fullnægjandi innviðir. Það er gott að hv. þingmaður sé núna búin að átta sig á því vegna þess að sá vilji var ekki fyrir hendi, [Frammíköll í þingsal.] sú sýn var ekki fyrir hendi á seinasta kjörtímabili.(Forseti hringir.)

Í þingsályktun um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2014–2017 sem þingið samþykkti síðastliðið vor er tekið fram að ríkisstjórnin muni styðja við frekari uppbyggingu innviða á Helguvíkursvæðinu með sambærilegum hætti og gert var á iðnaðarsvæðinu á Bakka. Það er þess vegna sem við ræddum það í ríkisstjórninni og það var samþykkt að ég hyggst leggja fram á komandi vorþingi frumvarp til laga um að fjármagna uppbyggingu í Helguvík. (Gripið fram í.) Ákveðnir efnisþættir í frumvarpinu munu þurfa samþykki Eftirlitsstofnunar EFTA og mun ráðuneytið vinna að málinu í fullu samstarfi við það. Þess ber að geta að bæjaryfirvöldum (Forseti hringir.) í Reykjanesbæ er fullkunnugt um þessa meðferð og eru mjög áfram um að þetta verklag verði viðhaft, (Forseti hringir.) enda er það leiðin til að tryggja að þessar framkvæmdir [Frammíköll í þingsal.] verði að veruleika athugasemdalaust.