144. löggjafarþing — 51. fundur,  16. des. 2014.

endurupptaka vegna látinna dómþola í máli Hæstaréttar nr. 214/1978.

368. mál
[22:10]
Horfa

Frsm. stjórnsk.- og eftirln. (Ögmundur Jónasson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis um frumvarp til laga um heimild til endurupptöku vegna látinna dómþola í máli Hæstaréttar nr. 214/1978.

Nefndin hefur fjallað um málið eftir að allsherjar- og menntamálanefnd vísaði því til hennar með vísan til 3. mgr. 23. gr. laga um þingsköp Alþingis.

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd flutti málið og var því vísað til allsherjar- og menntamálanefndar eftir 1. umr. Við nánari athugun var talið að málið ætti fremur heima í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd með vísan til þess að hér er um að ræða einstakt mál sem varðar í grundvallaratriðum eftirlit með framkvæmdarvaldinu og meðferð á rannsóknar- og valdheimildum.

Með frumvarpinu er lagt til að réttur til að leggja fram beiðni um endurupptöku færist til nánar tilgreindra nákominna skyldmenna látinna dómþola í málinu.

Nefndin tekur fram að settur saksóknari í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu hefur fengið frest fram í janúar til að skila umsögn sinni um endurupptökubeiðni tveggja dómþola í málinu. Nefndin telur nauðsynlegt að heimild látinna skyldmenna tveggja dómþola verði lögfest áður en sá frestur rennur út til þess að settur saksóknari geti tekið afstöðu til málsins óski eftirlifendur dómþolanna tveggja eftir því.

Að þessu nefndaráliti standa allir nefndarmenn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, hv. þingmenn Brynjar Níelsson, Pétur H. Blöndal, Valgerður Bjarnadóttir, Helgi Hjörvar, Birgitta Jónsdóttir, Sigrún Magnúsdóttir, Karl Garðarsson, Willum Þór Þórsson, Brynhildur Pétursdóttir og Ögmundur Jónasson.

Nefndin leggur til að málið verði samþykkt.