144. löggjafarþing — 53. fundur,  20. jan. 2015.

ávarp forseta.

[13:37]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Hv. alþingismenn. Fram undan er annasamur tími. Alþingi mun takast á við stór mál og þýðingarmikil viðfangsefni á vetrar- og vorþingi. Ég minni einnig á það sjónarmið sem ég setti fram á síðasta fundi fyrir jólahlé að brýnt er að allir sem að þinghaldinu komi geti skipulagt störf sín og verkefni í samræmi við samþykkta starfsáætlun og treyst því að ekki sé vikið frá henni nema í undantekningartilvikum. Vænti ég áfram góðs samstarfs við ríkisstjórn og þingmenn um það efni.

Á þessu ári eru merk tímamót í sögu þings og þjóðar. Þann 19. júní næstkomandi eru 100 ár liðin frá því íslenskar konur hlutu kosningarrétt til Alþingis. Framkvæmdanefnd afmælisársins hefur beitt sér fyrir ýmsum viðburðum á afmælisárinu, auk þess sem kvenfélög, sveitarfélög, skólar, kórar og söfn eiga frumkvæði að fjölmörgum viðburðum á árinu. Fyrirhugað er að Alþingi minnist kosningarréttarafmælisins með hátíðarþingfundi föstudaginn 19. júní. Þá verður opnuð sýning í Alþingishúsinu í tilefni afmælisins og verður hún opin almenningi laugardaginn 20. júní. Jafnframt verður á vef Alþingis opnuð vefsíða helguð afmælinu.

Ég vil ítreka þakkir mína til þingmanna allra fyrir framlag þeirra til þingstarfanna á haustþinginu og vona að okkur megi auðnast að standa vel að verki á síðari hluta þinghaldsins.