forsendur kjarasamninga og samningar við lækna.
Virðulegi forseti. Ég vil hefja mál mitt á að óska hæstv. forseta og þingmönnum öllum gleðilegs árs. Á síðustu dögum hefur verið gengið frá kjarasamningi við lækna. Það er mikið fagnaðarefni enda frumskylda okkar að tryggja vinnufrið og virkni hins opinbera heilbrigðiskerfis sem á að standa öllum Íslendingum opið, óháð efnahag.
Kjarasamningurinn vekur hins vegar ýmsar spurningar og þá sérstaklega í ljósi nokkuð misvísandi yfirlýsinga ráðherra ríkisstjórnarinnar í kjölfar gerðar hans. Samningurinn er umfram það sem gert er ráð fyrir í kjaraforsendum Seðlabanka Íslands fyrir komandi kjarasamninga og skapar auðvitað væntingar um sambærilegar kjarabætur hjá fjölmennum kvennastéttum eins og hjúkrunarfræðingum sem eiga völ á betur launuðum störfum í öðrum löndum rétt eins og læknar. Sjúkrahús eru jafn gagnslaus án lækna eins og þau eru án hjúkrunarfræðinga. Með sama hætti horfir lágtekjufólk til þess svigrúms sem kann að vera fyrir umtalsverðar kjarabætur enda hafa skattbreytingar ríkisstjórnarinnar bitnað fyrst og fremst á lágtekjufólki allt frá því að hún kom til starfa.
Hæstv. félagsmálaráðherra hefur sagt að meira svigrúm sé til kauphækkana en sem nemur þeim forsendum sem Seðlabankinn hefur gefið út. Hæstv. fjármálaráðherra hefur þvert á móti sagt að svigrúmið sé 3,5% eins og Seðlabankinn hefur gefið upp. Hæstv. forsætisráðherra hefur oft talað um mikilvægi kjarabóta fyrir lágtekjufólk. Ég vil þess vegna spyrja hæstv. forsætisráðherra: Er hann sammála félagsmálaráðherra eða fjármálaráðherra um þær forsendur sem leggja eigi til grundvallar til kjarasamninga núna? Er svigrúm til launahækkana umfram 3,5% eða ekki?