144. löggjafarþing — 53. fundur,  20. jan. 2015.

forsendur kjarasamninga og samningar við lækna.

[13:47]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegi forseti. Áður en ég kem að því að svara ágætri spurningu hv. þingmanns verð ég fyrst að koma á framfæri smáleiðréttingu. Það er alrangt, sem hv. þingmaður hélt fram hér áðan, að skattkerfisbreytingar, gjaldabreytingar og annað sem ríkisstjórnin hefur ráðist í hafi fyrst og fremst bitnað á lágtekjufólki, þvert á móti. Það hefur sérstaklega, í skattkerfisbreytingum, gjaldabreytingum og öðru, verið hugað að því að bæta stöðu fólks með millitekjur og lægri tekjur þannig að þær forsendur sem hv. þingmaður gaf sér voru alrangar.

Hvað varðar spurningu hv. þingmanns, um það hvort ég sé sammála mati hæstv. fjármálaráðherra eða hæstv. félagsmálaráðherra, þá er því auðsvarað: Ég er sammála mati beggja ráðherra. Ég er sammála mati fjármálaráðherra á því að mikilvægt sé að samið verði í þessum kjarasamningum á þann hátt að það sé til þess fallið að treysta stöðugleikann og ná fram raunverulegri kaupmáttaraukningu, raunverulegum kjarabótum. Ég er líka sammála því mati félagsmálaráðherra að svigrúm sé til að hækka laun. Þetta er þá spurning um hvernig það verði gert á sem skynsamlegastan hátt.

Ég hef talað fyrir því, bæði gagnvart aðilum vinnumarkaðarins og út á við í opinberri umræðu, að menn verði að komast út úr því að einblína á prósentur vegna þess að ef menn einblína á prósentur, og að sama prósentuhækkun eigi að ná upp allan skalann, þá sé það ekki vænlegt til árangurs í þeim kjarasamningum sem fram undan eru. Þess vegna sé skynsamlegra að líta á krónutöluhækkanir og huga að því að bæta áfram kjör millitekju- og lágtekjufólks eins og verið hefur raunin það sem af er stjórnartíð þessarar ríkisstjórnar.