störf þingsins.
Forseti. Þann 23. apríl 2013 segir formaður Sjálfstæðisflokksins að hægt verði að afnema gjaldeyrishöftin á næstu mánuðum. Þann 27. maí 2013 tilkynnir þá nýr forsætisráðherra að höftin verði afnumin samkvæmt áætlun sem byggist á hans eigin hugmyndum. Þann 15. ágúst 2013 tilkynnir forsætisráðherra að afnám haftanna geti hafist í fyrirsjáanlegri framtíð. Þann 15. október 2013 segir síðan fjármálaráðherra að stutt sé í afnám haftanna. Þann 16. október segir fjármálaráðherra að meiri háttar skref árið 2013 um afnám haftanna verði kynnt á næstu fimm mánuðum. Þann 30. október 2013 segir forsætisráðherra að það taki bæði skamman tíma og langan að afnema höftin.
Þann 26. janúar 2014 segir forsætisráðherra að ríkisstjórnin hafi skamman tíma til að afnema höftin. Þann 25. febrúar 2014 segir fjármálaráðherra að framkvæmd afnáms gjaldeyrishaftanna sé þegar í fullum gangi. Þann 7. júní 2014 segir fjármálaráðherra að pólitískan kjark þurfi til að afnema gjaldeyrishöftin. Þann 25. september 2014 segir fjármálaráðherra að árið 2014 hafi verið örlagaár við afnám haftanna enda sé ekki eftir neinu að bíða. Þann 1. nóvember 2014 segir fjármálaráðherra að hann hafi aldrei verið jafn sannfærður um að markverður árangur muni nást á allra næstu mánuðum við afnám haftanna og þann 11. nóvember sama ár segist fjármálaráðherra vongóður um að geta opinberað áætlun um afnám haftanna fyrir jól.
Þann 4. janúar 2015 segir forsætisráðherra að stór skref verði stigin í þeim mánuði. Þann 20. janúar segir fjármálaráðherra að afnám haftanna sé að hefjast og það skipti ekki öllu hvorum megin mánaðamótanna það verði úr þessu.
Þetta er stuttur listi, bara brot af því besta. Fyrir þá sem hafa áhuga á að lesa þetta ítarlegar má fara inn á hina (Forseti hringir.) ágætu vefsíðu bvg.is og sjá nánar um þetta samhengislausa rugl (Forseti hringir.) formanna stjórnarflokkanna (Forseti hringir.) um afnám gjaldeyrishaftanna, (Forseti hringir.) mikilvægasta mál samtímans sem þeir hafa hvorki (Forseti hringir.) þekkingu á né getu (Forseti hringir.) til að leysa.