144. löggjafarþing — 54. fundur,  21. jan. 2015.

störf þingsins.

[15:16]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf):

Virðulegur forseti. Misskipting auðs er mesta ógn við velferð og lýðræði í heiminum. Ríkasti hluti veraldarinnar verður sífellt ríkari á kostnað hinna, líka hér á Íslandi. Ríkasti hluti Íslendinga hefur á síðastliðnum áratug verið að eignast enn stærri hluta af kökunni en hann átti fyrir.

Það er nú þannig að eitt prósent Íslendinga á 23% af eignunum í landinu meðan 75%, eða 3/4 hlutar framteljenda, eiga 27% eða rétt um það bil svipaðan hlut af kökunni og ríkasta eitt prósentið. Það versta er að það Alþingi sem nú situr, meiri hlutinn á Alþingi hefur ekkert gert annað en að auka á þessa misskiptingu. Allar aðgerðir hans hafa markvisst miðað að því að lækka skatta á ríkasta eitt prósentið en auka byrðar þeirra sem neðst eru settir. Þannig hefur hann sérstaklega létt auðlegðarskatti af ríkustu 6.000 heimilunum í landinu, ríkustu þremur prósentunum sem nú þurfa ekki lengur að leggja til eina 11 milljarða á ári til samneyslunnar. Meiri hlutinn boðar núna að afnema hátekjuskattinn og hygla þannig enn og aftur ríkasta hluta Íslendinga, hann hefur hækkað matarskattinn á lægst launuðu hópana um leið og hann hefur aflétt vörugjöldunum á flatskjáina og nuddpottana sem kemur auðvitað þeim best sem efnaðastir eru. Þetta er hættuleg braut sem við erum á og við verðum að snúa af henni vegna þess að þessi misskipting ógnar bæði hagvextinum, velferðinni í landinu og lýðræði í okkar heimshluta.