144. löggjafarþing — 54. fundur,  21. jan. 2015.

störf þingsins.

[15:18]
Horfa

Hjálmar Bogi Hafliðason (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka Helga Hjörvar fyrir að taka þetta upp, en leiðrétta þingmanninn engu að síður að sú þróun sem hann fór yfir byrjaði ekki þegar ríkisstjórn Sigmundar Davíðs tók við. En öll kerfi hafa tilhneigingu til að viðhalda sjálfu sér. Þannig skapast jafnvægi og kerfi þurfa ekki að takast á við breytingar. En kerfið sem við mennirnir bjuggum til á örfáum árum og búum við hefur leitt af sér gríðarlegan ójöfnuð, misskiptingu auðs og sóun.

Í kvöldfréttum RÚV í gærkvöldi var greint frá því að ríkustu 10% Íslendinga eiga 73% auðs í landinu. Jafnframt kom fram að um 30% landsmanna eiga ekki fyrir skuldum. Getur slík misskipting viðgengist? Það er mjög mikilvægt að þetta verði kannað enn frekar og að allar okkar ákvarðanir leiði til aukins jöfnuðar í samfélaginu.

Ég vil ganga svo langt í þessum ræðustól að segja að þetta sé ein af ástæðunum fyrir miklum fólksflutningum frá landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins á skömmum tíma.

Þannig er það víða hringinn í kringum jörðina. Það er nefnilega ný þróun að borgir vaxi vegna lífsbjargarviðleitni fólks fremur en af velmegunarhvöt þess, en í hverri viku fjölgar borgarbúum á jörðinni um milljón. Ég segi það hér: Núna er ekki tími nornaveiða eða pólitískra vinsældarkapphlaupa. Fyrst og fremst er þörf á vitundarvakningu og kerfisbreytingu. Það að helmingur fátæklinga á jörðinni búi meðal auðlindaþjóða er ekki eðlilegt kerfi. Það að 70% íbúa í Nígeríu sem er eitt mesta olíuútflutningsríki Afríku búi undir fátæktarmörkum er ekki eðlilegt kerfi. Það að Gínea á vesturströnd Afríku sé einn helsti útflytjandi báxíts sem notað er í álframleiðslu sé níunda fátækasta land á jörðinni er ekki eðlilegt kerfi.

Orð forsætisráðherra um svigrúm til hækkunar lægstu launa vöktu því ákveðna ánægju hjá mér, og jafnframt að í komandi kjarasamningum verði hugsað um að hækka laun í krónum en ekki prósentum. Það eitt væri aðeins lítil kerfisbreyting í rétta átt gegn innbyggðum ójöfnuði í kerfinu.